Gamlar portrett myndir á nýjum stöðum / Old portraits in new places

via

Gamlar málaðar portrett myndir í rýmum dagsins í dag? Já, vegna þess að þær auka á glæsileika, skapa dýpt og vekja forvitni. Þar sem ég er aðdáendi málaralistar 19.aldar er ég hlutdræg en rennið í gegnum þessar ljósmyndir sem ég hef safnað saman af flottum nútíma herbergjum þar sem gamlar portrettmyndir eru notaðar til skrauts. Kemur þetta ekki vel út?

Continue reading →

Masters, Kartell

Masters stóllinn frá Kartell er að mínu mati listaverk en Philippe Starck setti saman þrjá heimsfræga hönnunarstóla í einn. Ef grannt er athugað má sjá útlínur Sjöu Arne Jacobsen, Tulip stól Eero Saarinen og Eiffel stól Charles Eames. Nafn stólsins, Meistarar (Masters), er því afar viðeigandi. Continue reading →

Hlutfall / Proportion

Hlutföll, hlutföll, hlutföll. Sjálfsagt hafa sumir viðskiptavinir mínir hrist höfuðið yfir allt þetta tal um hlutföll sem ég tel mjög mikilvægt í allri hönnun. Hægt er að lesa um hvað hlutfall er á Wikipedia en það er ekki til eitt alheimshlutfall sem virkar alls staðar þó hlutfallsreglan sé sú sama. Allt er þetta tengt ótal þáttum,breytum sem eru mismunandi á hverjum stað.  Nú, eftir alla þessa ræðu þá verð ég að viðurkenna að ég hef mjög gaman af að sjá þegar leikið er með hlutföll og stærðir á óhefðbundin hátt. Continue reading →