Það borgar sig að gera ráð fyrir innstungum í eldhúseyju hvort sem hún er með helluborði, vaski eða eldhústækjalaus. Innstungur fyrir tæki og tól sem eru geymd í skápum en tekin upp til tímabundinnar notkunar eins og ristavél, hrærivél og töfrasproti. Margir vilja líka getið hlaðið spjaldtölvuna eða snjallsíma sinn í eldhúsinu. Continue reading
Category Archives: Products
Gull & látún / Gold & brass
Látún og gylling í innréttingum er ekki orðin algeng sjón en þó er farið að nota það í meira mæli en áður. Það þótti ekki fínt að hafa gyllta lampa eða höldur og hvað þá heilu innréttingarnar þegar stálið tröllreið öllu. Það eru svo sannarlega straumar og stefnur í innanhússhönnun eins og í flestu öðru. Continue reading
Blandaðir málmar / Mixed metals
Enn heldur málmveislan áfram samkvæmt hönnunarsýningunni Salone del mobile í Mílanó og enginn einn málmur eða málmlitur er meira áberandi en annar. Gylltar vörur, kopar vörur og silfraðar, hvort sem um er að ræða ál, stál eða króm. Kíkið á þessar vörur sem sýndar voru á sýningunni þetta ár.
The metal feast is still going strong according to the design fair Salone del mobile in Milan and no one metal or metal color is more dominant than any other. Products out of copper and brass, as well as silver, be it aluminum, chrome or steel. Take a look at these products from the Milan show 2015. Continue reading
HönnunarMars 2015 / DesignMarch 2015
HönnunarMars er NÚNA, frábær árlegur viðburður sem snertir marga fleti hönnunar. Þetta ár hef ég minni tíma en áður til að sækja fyrirlestra, opnunarboð og sýningar og mun því skipuleggja daginn sem ég hef til skoðunar afar vel. Sem er nokkuð auðvelt að gera með því að nota dagskár flipann á vefsíðunni hönnunarmars.is. Reynið endilega að kíkja á þessa hátíð hönnuða sem haldin er nú í sjöunda sinn. Continue reading
Notaðar hönnunarvörur
Á Facebook er að finna íslenska síðu þar sem auglýstar eru notaðar hönnunarvörur til sölu. Þar er margt skemmtilegt að finna þó að stundum læðast inn vörur sem seint er hægt að telja til hönnunarvara. Reglur síðunnar eru þó orðnar skýrari og já, kannski má segja strangari sem er auðvitað gott. Continue reading
Öðruvísi kerti / Creative candles
Það snjóar, vindurinn hvín og dimmt er úti. Þetta er ágætis lýsing á allt of mörgum kvöldum þennan vetur. En kertaljós gera kvöldin ögn notalegri, ekki satt? Hér að neðan eru myndir af öðruvísi kertum þar sem hugmyndaflugið hefur fengið að njóta sín. Hver segir að allt eigi að vera venjulegt? Continue reading
Ikea & Ilse Crawford
Sinnerlig línan er afrakstur samstarfs Ikea og Ilse Crawford en Ilse er vel þekktur breskur hönnuður. Samkvæmt netfréttum verður línan komin í Ikea verslanir haustið 2015. Continue reading
Masters, Kartell
Masters stóllinn frá Kartell er að mínu mati listaverk en Philippe Starck setti saman þrjá heimsfræga hönnunarstóla í einn. Ef grannt er athugað má sjá útlínur Sjöu Arne Jacobsen, Tulip stól Eero Saarinen og Eiffel stól Charles Eames. Nafn stólsins, Meistarar (Masters), er því afar viðeigandi. Continue reading
Bemz
Áttu Ikea sófa með þreyttu áklæði eða ertu að kaupa nýjan en vilt annað áklæði en Ikea býður upp á? Viltu einstakan sófa? Skoðaðu þá Bemz.
Nýir gamlir stólar / New old chairs
Ég tengist sumum húsgögnum tilfinningalegum böndum og á stundum erfitt með að losa mig við hluti sem ég hef hreinlega ekkert lengur með að gera. Manninum mínum fylgdi sófasett þegar við byrjuðum að búa og þó að sófinn sé löngu farinn Continue reading